Flóð og fjara
SumarMacramé fyrir krakka / 18.-21. ágúst
SumarMacramé fyrir krakka / 18.-21. ágúst
4 in stock
Couldn't load pickup availability
Í sumar verður boðið uppá vikunámskeið fyrir krakka á vinnustofu Flóðs & fjöru í Bolholti 4, 2. hæð. Kennari er Hera Sigurðardóttir .
Um námskeiðið:
Á námskeiðinu læra krakkarnir að gera regnboga & lauf, vegghengi & plöntuhengi með macramé hnúta aðferðinni, auk þess að við ætlum að æfa okkur að hekla með þykkum macramé þráðum. Börnin fá að prufa sig áfram með efnið, fá kennslu í hnýtingum & hekli og leiðbeiningu með hvernig þau vilja að verkið líti út að lokum. Námskeiðinu lýkur með fjölskyldustund á lokadeginum.
Á námskeiðinu verður lagt uppúr hópefli og sjálfstyrkingu svo að öllum geti liðið vel í hópnum og auðveldara verði fyrir hópinn og einstaklingana að mynda tengsl, tjá sig og láta sköpunarflæðið njóta sín.
Í macramé eru mistök velkomin, þannig lærum við og verðum betri í því sem við erum að fást við en jafnframt er auðvelt að breyta og bæta verkið með því að halda bara áfram. Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt fyrir fólk á öllum aldri.
Námskeiðið hentar öllum þeim krökkum sem hafa áhuga á að skapa og vinna með höndunum. Engin handavinnukunnátta þarf að vera fyrir hendi.
Nánari upplýsingar:
Námskeiðið er frá kl. 8:30-11:30, mán-fim, svo gott er að börnin hafi meðferðis létt nesti. Allt efni fyrir handavinnuna verður á staðnum. Námskeiðið fer fram á vinnustofu Flóðs & fjöru í Bolholti 4, 2. hæð, 105 Reykjavík. Aðeins er pláss fyrir 5 börn. Þetta námskeið er fyrir krakka á aldrinum 9-12 ára. Hægt er að óska eftir undanþágu varðandi aldur, hafið þá samband með tölvupósti: flodogfjara@flodogfjara.com
Verðið er 25.900 kr.
Mán. 18.08. - fim 21.08.
Tímafjöldi: 12
Um kennarann:
Hera Sigurðardóttir er með menntun í mannfræði og hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hún hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum en frá 2002-2015 starfaði hún hjá Reykjavíkurborg sem frístundaráðgjafi og verkefnastjóri á leikjanámskeiðum, í félagsmiðstöðvum og ungmennahúsum. Auk þess að hafa verið stundakennari í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Hera hefur mikla reynslu af því að valdefla og leiðbeina hópum og einstaklingum og ná fram sköpunarkraftinum og leikgleðinni.
Share

-
Sækja eða senda
Sjá nánar um skilmálaHægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru, Bolholti 4, 2. hæð
Dropp sér um að senda vörur þangað sem þú óskar. -
Handgert og umhverfisvænt
Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.