Skilmálar

Um Flóð & fjöru:
Hugur Hjarta Hönd slf 
Rauðarárstígur 1, 105 Reykjavík
Sími: 6923351
Netfang: studio.flodogfjara@gmail.com


Flóð & fjara áskilur sér rétt til að hætta við pantanir og námskeið, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir eða aflýsa námskeiði fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.


Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar 1-3 dögum eftir pöntun en það á ekki við um sérpantanir. Sé varan ekki til á lager eða um sérpöntun að ræða munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Flóð & fjara ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Flóð & fjöru til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Afbókunarskilmálar á námskeið
Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrirvara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan tveggja sólarhringa fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt en hægt er að eiga inneign hjá Flóð & fjöru að andvirði skráningagjaldsins. Inneignina má nýta á annað námskeið er fyrir kaup á vörum.

Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við
sé sendingu óskað. Við sendum allar vörur með Íslandspósti. Sendingakostnaður er 500 kr.
Ef verslað er fyrir t.d. 15.000 kr. eða meira þá fellur sendingarkostnaðurinn niður.

Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem
sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í
fullkomnu lagi og í sínum upprunalega ástandi þegar henni er skilað. 

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn eða endurbætur á gallanum og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

Trúnaður 
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur.