Skip to product information
1 of 2

Flóð og fjara

Krakkasmiðja / Macramé vegghengi / 20. febrúar

Krakkasmiðja / Macramé vegghengi / 20. febrúar

Regular price 8.900 ISK
Regular price Verð 8.900 ISK
Sale Selt
Taxes included. Shipping calculated at checkout.

6 in stock

Í vetrarfríinu verður boðið uppá stakar smiðjur fyrir krakka á vinnustofu Flóðs & fjöru á Faxatorgi - Faxafen 10, 2. hæð. Kennari er Hera Sigurðardóttir.

Macramé vegghengi : föstudaginn 20. febrúarn - kl. 9-12 - fyrir aldurinn 8-12 ára

Um smiðjuna:
Krakkarnir læra að gera vegghengi með macramé hnúta aðferðinni. Börnin fá að prufa sig áfram með efnið, fá kennslu í hnýtingum og leiðbeiningu með hvernig þau vilja að verkið líti út að lokum.

Einstök leið til að vinna með höndunum og láta sköpunarflæðið njóta sín.

Nánari upplýsingar:
Smiðjan er frá kl. 9-12, föstudaginn 20. febrúar, gott er að börnin hafi meðferðis létta hressingu. Allt efni fyrir macramé vinnu verður á staðnum. Smiðjan fer fram á vinnustofu Flóðs & fjöru á Faxatorgi - Faxafeni 10, 2. hæð, 108 Reykjavík. Þessi smiðja er fyrir krakka á aldrinum 8-12 ára.

Verð: 8900 kr.
Dag:. 20.02.2026
Tímafjöldi: 3

Um kennarann:
Hera Sigurðardóttir er með menntun í mannfræði og hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hún hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum en frá 2002-2015 starfaði hún hjá Reykjavíkurborg sem frístundaráðgjafi og verkefnastjóri á leikjanámskeiðum, í félagsmiðstöðvum og ungmennahúsum. Auk þess að hafa verið stundakennari í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Hera hefur mikla reynslu af því að valdefla og leiðbeina hópum og einstaklingum og ná fram sköpunarkraftinum og leikgleðinni.

Í Flóð & fjöru eru mistök velkomin, þannig lærum við og verðum betri í því sem við erum að fást við en jafnframt er auðvelt að breyta og bæta verkið með því að halda bara áfram. Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt fyrir fólk á öllum aldri.
Smiðjan hentar öllum þeim krökkum á þessum aldri sem hafa áhuga á að skapa og vinna með höndunum. Engin handavinnukunnátta þarf að vera fyrir hendi.

 

Afbókunarskilmálar á námskeið
Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrirvara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan eins sólarhrings fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt. Alltaf velkomið að hafa samband og athuga hvort önnur dagsetning henti sé þess óskað.

View full details
  • Sækja eða senda

    Hægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru, Bolholti 4, 2. hæð
    Dropp sér um að senda vörur þangað sem þú óskar.

    Sjá nánar um skilmála 
  • Handgert og umhverfisvænt

    Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.