Flóð og fjara
Hekluð taska / 23. febrúar / morgun námskeið
Hekluð taska / 23. febrúar / morgun námskeið
5 in stock
Couldn't load pickup availability
Verið hjartanlega velkomin á vinnustofu Flóðs & fjöru á Faxatorgi - Faxafeni 10, 2. hæð, mánudaginn 23. febrúar kl. 9:30-12:30. Öll velkomin, bæði þau sem kunna að hekla og þau sem eru byrjendur. Ath. námskeiðið er 3 tímar.
Samverustundin hefst á hlýjum tebolla og léttum inngangi um töfra handavinnunnar og allt efni verður á staðnum. Hver þátttakandi fær efni í eina tösku, heklunál í stærð 8 og uppskrift.
Verðið er 14.900 kr.
Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.
Heilandi samverustund þar sem við fræðumst um það hvaðan macramé kemur, spjöllum um heilunarmátt handavinnunnar og lærum undirstöðu hnúta í macramé svo hægt sé að byrja að skapa, flæða og gera þitt eigið verk, það sem hugurinn, hjartað og hendurnar girnast.
Afbókunarskilmálar á námskeið
Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrirvara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan eins sólarhrings fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt. Alltaf velkomið að hafa samband og athuga hvort önnur dagsetning henti sé þess óskað.
Share

-
Sækja eða senda
Sjá nánar um skilmálaHægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru, Bolholti 4, 2. hæð
Dropp sér um að senda vörur þangað sem þú óskar. -
Handgert og umhverfisvænt
Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.