Flóð og fjara
Hekl fyrir byrjendur / 24. febrúar
Hekl fyrir byrjendur / 24. febrúar
Low stock: 1 left
Couldn't load pickup availability
Langar þig að læra að hekla eða vantar þig að fá upprifjun í hekli? Vertu með í litlum hópi þar sem við lærum grunnlykkjurnar í hekli svo þú getir hafist handa við að hekla það sem þú vilt, peysur, húfur, teppi...
Dagsetning: Þriðjudaginn 24. febrúar
Tími: 18:30-20:30
Verð: 11.900 kr.
Innifalið er kennsla, heklunál & garn
Námskeið hentar vel fyrir byrjendur & upprifendur. Hlýr tebolli og hugguleg stemning. Kennari Hera Sigurðardóttir.
Sköpun og handavinna eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.
Afbókunarskilmálar á námskeið
Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrirvara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan eins sólarhrings fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt. Alltaf velkomið að hafa samband og athuga hvort önnur dagsetning henti sé þess óskað.
Share

-
Sækja eða senda
Sjá nánar um skilmálaHægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru, Bolholti 4, 2. hæð
Dropp sér um að senda vörur þangað sem þú óskar. -
Handgert og umhverfisvænt
Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.