Skip to product information
1 of 2

Flóð og fjara

Heilandi Handverk / 24. júní

Heilandi Handverk / 24. júní

Regular price 15.900 ISK
Regular price Verð 15.900 ISK
Sale Selt
Tax included. Shipping calculated at checkout.

Haldið verður skapandi námskeið í macramé hnýtingum að hætti Flóðs og fjöru / Heru Sigurðardóttur, í samstarfi við Rannveigu Þyri Guðmunsdóttur Vatna Völvu.

Við köllum stundina Heilandi Handverk og fer hún fram í stúdíói Flóðs & fjöru á Rauðarárstíg 1, mánudaginn 24. júní kl. 18:00-21:30. Öll velkomin, bæði þau sem þekkja macramé og þau sem eru að heyra um það í fyrsta sinn. 

Á námskeiðinu búa þátttakendur sér til heilandi handverk fyrir heimilið og við notum vatnið sem hjálpar miðil við handverkið.
Samverustundin hefst á hlýjum tebolla og léttum inngangi um macramé og töfra handavinnunnar og allt efni verður á staðnum.
Áður en hafist er handa við hnýtingarnar, ræðir Rannveig um hjálpsemi vatnsins við ásetning og leiðir hópinn í gegnum vatna hugleiðslu.

Allir þátttakendur fara heim með sitt eigið vegghengi sem geislar frá sér þeim ásetningi er þú velur fyrir verkið. Hvaða orku vilt þú að handverkið þitt veiti inn á heimilið þitt. Verður ásetningurinn, ást, friður, vernd, gleði...

Skráningargjald er 15.900 kr. 

Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.
Heilandi samverustund þar sem við fræðumst um það hvaðan macramé kemur, spjöllum um heilunarmátt handavinnu og vatns, og lærum undirstöðu hnúta í macramé svo hægt sé að skapa, flæða og gera þitt eigið verk, það sem hugurinn, hjartað og hendurnar girnast.
Ánægjuleg og skapandi stund með Heru og Rannveigu.

View full details
  • Sækja eða senda

    Hægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru á Rauðarárstíg 1 - einnig er hægt að óska eftir að fá vörur sendar með því að senda póst á netfangið: herasigurdar@gmail.com

    Sjá nánar um skilmála 
  • Handgert og umhverfisvænt

    Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.