Skip to product information
1 of 3

Flóð og fjara

Systraskjóðan / uppskrift

Systraskjóðan / uppskrift

Regular price 1.100 ISK
Regular price Verð 1.100 ISK
Sale Selt
Taxes included. Shipping calculated at checkout.

Systraskjóðan er heklaður pungur eða taska fyrir þínar daglegu nauðsynjar eða til að poppa upp dressið þegar þú ferð í veislu. Skjóðan er góð yfir öxlina eða hægt að skella henni þvert yfir líkamann eins og góðum hliðarpung.

Hugmyndin að systraskjóðunni varð til á Prjónagleðinni á Blönduósi árið 2025 þegar Lára systir Heru í Flóð & fjöru óskaði eftir að geta gert tösku sem þessa. Þá fórum við systur á hugarflug, sóttum okkur heklunál og garn og hófumst handa.

Úr varð Systraskjóðan sem öllum gefst nú tækifæri til að hekla með sínu nefi.

Taskan er hekluð úr 3 mm Braided Cord þræði frá Bobbiny
Í þessari uppskrift er hekluð lítil taska og í hana fara 3 dokkur eða 250-300 metrar af þræði.

Taskan er hekluð með 6 mm heklunál.

Hafðu til hliðar 1 prjónamerki eða auka band í öðrum lit til að merkja.
Í lokin er gott að hafa heklunál í minni stærð td. 4-5 mm til að ganga frá endum.

Stærð skjóðunnar: 
Botn ca. þvermál: 15-18 cm
Op að ofan ca. þvermál: 20-23 cm
Hæð: 20-23 cm.

COPYRIGHT Flóð & fjara. Óheimilt er að fjölfalda uppskriftina, dreifa henni eða selja hana, í hvaða formi sem er eða með hvaða aðferðum sem er, án fyrirfram fengins leyfis frá Flóð & fjöru

View full details
  • Sækja eða senda

    Hægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru, Bolholti 4, 2. hæð
    Dropp sér um að senda vörur þangað sem þú óskar.

    Sjá nánar um skilmála 
  • Handgert og umhverfisvænt

    Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.