Skip to product information
1 of 1

Flóð og fjara

Sumarnámskeið fyrir krakka / 17.-20. ágúst

Sumarnámskeið fyrir krakka / 17.-20. ágúst

Regular price 28.500 ISK
Regular price Verð 28.500 ISK
Sale Selt
Taxes included. Shipping calculated at checkout.

Low stock: 1 left

Í sumar verður boðið uppá 4 daga námskeið fyrir krakka á vinnustofu Flóðs & fjöru á Faxatorgi - Faxafeni 10, 2. hæð. Kennari er Hera Sigurðardóttir .

Um námskeiðið:
Á námskeiðinu læra krakkarnir að alls konar handavinnu eins og að hnýta mismunandi macramé, myndvefnað og myndflos. Áhersla verður lögð á að vinna með liti og form, hafa gaman og prufa alls konar þræði og áferðir. Börnin fá að prufa sig áfram með efnið, fá kennslu og leiðbeiningu með hvernig þau vilja að verkin líti út að lokum. Námskeiðinu lýkur með fjölskyldustund á lokadeginum.

Á námskeiðinu verður lagt uppúr hópefli og sjálfstyrkingu svo að öllum geti liðið vel í hópnum og auðveldara verði fyrir hópinn og einstaklingana að mynda tengsl, tjá sig og láta sköpunarflæðið njóta sín.

Í Flóð & fjöru eru mistök velkomin, þannig lærum við og verðum betri í því sem við erum að fást við og öðlumst sjálfstraust til að breyta og bæta til að geta haldið áfram. Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í sínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt fyrir fólk á öllum aldri.

Námskeiðið hentar öllum þeim krökkum sem hafa áhuga á að skapa og vinna með höndunum. Engin handavinnukunnátta þarf að vera fyrir hendi.

Nánari upplýsingar:
Námskeiðið er frá kl. 8:30-11:30, mán-fim, svo gott er að börnin hafi meðferðis létt nesti. Allt efni fyrir handavinnuna verður á staðnum. Námskeiðið fer fram á vinnustofu Flóðs & fjöru á Faxatorgi - Faxafeni 10, 2. hæð, 108 Reykjavík. Aðeins er pláss fyrir 5 börn. Þetta námskeið er fyrir krakka á aldrinum 9-12 ára. Hægt er að óska eftir undanþágu varðandi aldur, hafið þá samband með tölvupósti: flodogfjara@flodogfjara.com

Verðið er 28.500 kr.
Mán. 17.08. - fim 20.08.
Tímafjöldi: 12

Um kennarann:
Hera Sigurðardóttir er með menntun í mannfræði og hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hún hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum en frá 2002-2015 starfaði hún hjá Reykjavíkurborg sem frístundaráðgjafi og verkefnastjóri á leikjanámskeiðum, í félagsmiðstöðvum og ungmennahúsum. Auk þess að hafa verið stundakennari í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Hera hefur mikla reynslu af því að valdefla og leiðbeina hópum og einstaklingum og ná fram sköpunarkraftinum og leikgleðinni.

View full details
  • Sækja eða senda

    Hægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru, Bolholti 4, 2. hæð
    Dropp sér um að senda vörur þangað sem þú óskar.

    Sjá nánar um skilmála 
  • Handgert og umhverfisvænt

    Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.