Skip to product information
1 of 1

Flóð og fjara

Macramé vegghengi / á Hellu / 11. október

Macramé vegghengi / á Hellu / 11. október

Regular price 14,900 ISK
Regular price Verð 14,900 ISK
Sale Selt
Taxes included. Shipping calculated at checkout.

9 in stock

Verið velkomin á macramé vegghengja námskeið í Safnaðarheimilinu á Hellu, Dynskálum 8, sunnudaginn 11. október kl. 13:00-15:30. Öll velkomin, bæði þau sem þekkja macramé og þau sem eru að heyra um það í fyrsta sinn. Kennari er Hera Sigðurardóttir

Þátttakendur læra helstu grunnhnútana í macramé og hnýta sitt eigð hengi í hugrekki og flæði. Allur efniviður er innifalinn í skráningargjaldi og þátttakendur fara heim með sitt eigið vegghengi.

Verðið er 14.900 kr.

Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.

Heilandi samverustund þar sem við fræðumst um það hvaðan macramé kemur, spjöllum um heilunarmátt handavinnunnar og lærum undirstöðu hnúta í macramé svo hægt sé að byrja að skapa, flæða og gera þitt eigið verk, það sem hugurinn, hjartað og hendurnar girnast.

Afbókunarskilmálar á námskeið
Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrirvara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan eins sólarhrings fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt. Alltaf velkomið að hafa samband og athuga hvort önnur dagsetning henti sé þess óskað.

View full details
  • Sækja eða senda

    Hægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru, Bolholti 4, 2. hæð
    Dropp sér um að senda vörur þangað sem þú óskar.

    Sjá nánar um skilmála 
  • Handgert og umhverfisvænt

    Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.