Skip to product information
1 of 1

Flóð og fjara

Macramé jólaföndur / 8. desember

Macramé jólaföndur / 8. desember

Regular price 10,900 ISK
Regular price Verð 10,900 ISK
Sale Selt
Taxes included. Shipping calculated at checkout.

5 in stock

Verið velkomin í huggulega handavinnustund með hlýjum tebolla á vinnustofu Flóðs & fjöru á Faxatorgi, Faxafeni 10, 2.hæð, þriðjudaginn 8. desember kl. 18:00 - 20:00.

Á þessu macramé jólaföndur námskeiði ætlum við að hnýta jólasveina - allt efni á staðnum og innifalið í skráningargjaldi.

Öll velkomin, bæði þau sem þekkja macramé og þau sem eru að heyra um það í fyrsta sinn.

Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.

Heilandi samverustund þar sem við fræðumst um það hvaðan macramé kemur, spjöllum um heilunarmátt handavinnunnar og lærum undirstöðu hnúta í macramé svo hægt sé að byrja að skapa, flæða og gera þitt eigið verk, það sem hugurinn, hjartað og hendurnar girnast.

Afbókunarskilmálar: Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrir vara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan tveggja sólarhringa fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt en hægt erað eiga inneign hjá Flóð & fjöru að andvirði skráningagjaldsins. 

View full details
  • Sækja eða senda

    Hægt er að sækja pantanir í verslun Flóðs & fjöru á Faxatorgi, Faxafeni 10, 2. hæð
    Dropp sér svo um að senda pantanir þangað sem þú óskar.

    Sjá nánar um skilmála 
  • Handgert og umhverfisvænt

    Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.