Flóð og fjara
Hekluð taska / Vefnámskeið
Hekluð taska / Vefnámskeið
Couldn't load pickup availability
Á þessu vefnámskeiði heklum við saman tösku sem getur til dæmis gagnast vel sem verkefnastaska fyrir handavinnuna á ferðinni. Taskan getur auðvitað nýst í hvaða hlutverk sem töskur í þínu lífi gegna en það er einstaklega gaman að ganga um með tösku sem þínar hendur hafa heklað sjálfar.
Taskan er hekluð úr 5mm Braided Cord frá Bobbiny með heklunál nr. 8. Það sem þú þarft einnig að hafa við höndina eru skæri, auka þræðir eða prjónamerki (x4) & heklunál í minni stærð til að ganga frá endum.
Námskeiðið hentar byrjendum sem og lengra komnum.
Innihald:
- Inngangur
- Farið yfir það sem þú þarft
- Kennsla á þeim lykkjum sem notaðar eru
- Kennslumyndband - taskan hekluð
- Spjall með Heru
- Teygjur fyrir handavinnuhendur & axlir
- Uppskrift á PDF
- Afsláttarkóði fyrir kaup á 5mm Braided Cord og heklunál
Þegar þú hefur greitt fyrir námskeiðið á greiðslusíðunni kemur upp á sömusíðu beiðni um að búa til aðgang. Þú fylgir þeim hnappi sem á stendur: Access Members Area
Þar býrðu til aðgang og hefur aðgang að námskeiðinu hvenær sem þér hentar. Þú getur alltaf nálgast efnið aftur með því að finna "kallinn" efst í hægra horninu á forsíðu Flóðs & fjöru, við hliðina á körfunni. Góða skemmtun :)
Share

-
Sækja eða senda
Sjá nánar um skilmálaHægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru, Bolholti 4, 2. hæð
Dropp sér um að senda vörur þangað sem þú óskar. -
Handgert og umhverfisvænt
Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.