Flóð og fjara
Afmælisveifur fyrir Prjónagleðina 2026
Afmælisveifur fyrir Prjónagleðina 2026
Couldn't load pickup availability
Vertu með í veifugleði fyrir 10 ára afmælishátíð Prjónagleðinnar á Blönduósi.
Átt þú afganga í körfunni sem bíða eftir rétta verkefninu? Nú gefum við afgöngunum nýtt líf! Við hvetjum öll til að prjóna eða hekla litríkar veifur úr garnafgöngum og taka þátt í að skapa skemmtilega og umhverfisvæna stemningu á afmælishátíð Prjónagleðinnar 2026.
Nýttu það sem til er: Notaðu allar gerðir af garni, blandaðu saman litum og leiktu þér með ólíkar áferðir. Hver veifa verður algjörlega einstök. Garnskipti: Átt þú bara græna afganga en vantar bleika? Garnvinir eru oft í sömu sporum, skiptist á hnyklum. Það er ótrúlegt hvað einn lítill afgangur getur gert fyrir næsta verkefni.
Deildu mynd af ferlinu eða fullbúnum veifum á samfélagsmiðlum.
Sendu okkur veifurnar: Upplýsingar um afhendingarstað í lok skjals.
Merktu myndirnar þínar svo við getum fylgst með
#prjonagledi2026 #textilbarinn #flodogfjara #veifugledi
Share

-
Sækja eða senda
Sjá nánar um skilmálaHægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru, Bolholti 4, 2. hæð
Dropp sér um að senda vörur þangað sem þú óskar. -
Handgert og umhverfisvænt
Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.