{"product_id":"stort-vegghengi-helgarnamskeid-17-18-oktober","title":"Stórt vegghengi \/ Helgarnámskeið \/ 17. \u0026 18. október","description":"\u003cp\u003eÍ október (17. \u0026amp; 18. okt) býð ég þér að skapa stórt og fallegt vegghengi sem getur verið glæsileg gjöf eða prýtt þitt eigið heimili, vinnustað eða sumarbústað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÖll velkomin, bæði þau sem þekkja macramé og þau sem eru að stíga sín fyrstu skref. Kennsla fyrir byrjendur er innifalin.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHver þátttakandi hnýtir sitt eigið vegghengi, sitt eigið sköpunarverk á ca 60 cm viðarstöng, nokkrir litir í boði. Heilandi samverustund þar sem máttur handavinnunnar og sköpunarflæðið fær að njóta sín undir handleiðslu Heru. Byrjendur fá grunnkennslu og allur efniskostnaður er innifalinn\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNámskeiðið er samtals 8 tíma og við hittums kl. 11-15 á laugardeginum \u0026amp; kl. 11-15 á sunnudeginum. Kaffi, te og léttar veitingar í boði. Námskeiðið er haldið á vinnustofu Flóðs \u0026amp; fjöru á Faxatorgi, Faxafeni 10, 2. hæð.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVerðið er 31.900 kr.\u003cbr\u003eMöguleiki á að skipta greiðslum í tvennt sé þess óskað. Hafið samband á netfangið flodogfjara@flodogfjara.com. Vakin er athygli á að nýta endurgreiðslur stéttafélaga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur og útkoman er þín.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cspan face=\"Arial, sans-serif\" style=\"font-family: Arial, sans-serif;\"\u003e\u003cspan size=\"3\" style=\"font-size: medium;\"\u003e\u003cspan face=\"Arial, sans-serif\" style=\"color: rgb(128, 128, 128);\"\u003e\u003cspan size=\"3\"\u003eAfbókunarskilmálar: Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrir vara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan tveggja sólarhringa fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt en hægt erað eiga inneign hjá Flóð \u0026amp; fjöru að andvirði skráningagjaldsins. \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Flóð og fjara","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47937396670694,"sku":null,"price":31900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0667\/4854\/7302\/files\/MinimalistSummerPhotoCollageInstagramPost.jpg?v=1782830148","url":"https:\/\/flodogfjara.com\/products\/stort-vegghengi-helgarnamskeid-17-18-oktober","provider":"Flod og fjara","version":"1.0","type":"link"}