{"product_id":"peysuprjon-4-skipti-8-29-september","title":"Peysuprjón \/ 4 skipti \/ 8.-29. september","description":"\u003cp\u003eLangar þig að prjóna peysu í flæði, efla hugrekki þitt í handavinnunni og skapa þína eigin flík frá grunni?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ þessu námskeiði ætlum við að gera allt þetta í notalegu rými á þeim hraða sem þér hentar. Við ætlum að prjóna peysu innan ákveðins ramma og eftir grunnaðferð, stíga inní hugrekkið, kveikja á hugmyndafluginu í litavali, flæði og gleði. Þú velur þína eigin liti og stærð en færð leiðbeiningu og hvatningu með allt annað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið prjónum peysuna fram og til baka í 4-5 hlutum (fer eftir því hvort þú vilt hafa hana opna eða lokaða) og lykkjum svo hlutana saman. Það er nóg að kunna slétt prjón, kostur að kunna brugðið líka. Byrjendur \u0026amp; upprifjendur fá kennslu í prjóni.\u003cbr\u003eÍ lokin lykkjum við saman annað hvort með nál eða heklunál. Þau sem þurfa fá kennslu í því. Á milli þess sem við hittumst fá þátttakendur send kennslumyndbönd sem styðja við og hjálpa á þeim stað sem þið eruð stödd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið hittumst einu sinni í viku í 4 vikur í 2 tíma í senn og náum þannig að mynda gott samfélag og aðhald okkar á milli en engin pressa er þó á að klára ákveðna hluti fyrir ákveðinn tíma. Allir þátttakendur fá tæki og tól til þess að ná að klára sína peysu á sínum hraða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHugmyndin byggist á því að vinna með afgangsgarn eða það garn sem þú átt heima en auðvitað er velkomið að kaupa nýtt garn sérstaklega fyrir verkefnið. Það verður auka afgangsgarn á staðnum til að nota með og bæta við en þátttakendur útvega uppistöðu garnið í sínu verki og koma með sína eigin prjóna. Mælt er með 60 eða 80 cm hringprjónum í stærð 6-12. Velkomið að eiga samtal um hentuga prjónastærð miðað við garnóskir áður en námskeiðið hefst.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAllir þátttakendur fá 15% afslátt í verslun Flóðs \u0026amp; fjöru á meðan námskeiðinu stendur. Svo ef þig vantar prjóna eða annað er hægt að bæta úr því í fyrsta tíma.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNámskeiðið hentar vel fyrir bæði byrjendur og lengra komna og er þetta einstakt tækifæri til þess að njóta handavinnunnar í flæði og sköpun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið hittumst þriðjudagana: 8., 15., 22. og 29. september.\u003cbr\u003eKlukkan 18:00 - 20:00\u003cbr\u003eVerð: 24.900 kr.\u003cbr\u003e(velkomið að hafa samband til að skipta greiðslum)\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eLeiðbeinandi er Hera Sigurðardóttir eigandi Flóðs \u0026amp; fjöru.\u003c\/p\u003e","brand":"Flóð og fjara","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47923277791462,"sku":null,"price":24900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0667\/4854\/7302\/files\/ColorfulRetroGrainyGradientQuoteInspirationInstagramPost_b542133b-1b46-42fd-9fb4-6d5a4cfad542.png?v=1774453017","url":"https:\/\/flodogfjara.com\/products\/peysuprjon-4-skipti-8-29-september","provider":"Flod og fjara","version":"1.0","type":"link"}