Aðventu kertamálun / 3. desember
Aðventu kertamálun / 3. desember
Regular price
6.900 ISK
Regular price
Verð
6.900 ISK
Unit price
per
Hóhóhó!
Það er erfitt að ímynda sér nokkuð notalegra en að setjast með nokkrum hyggeþenkjandi einstaklingum og læra að handmála kerti í Flóð & fjöru, Rauðarárstíg 1, þriðjudaginn 3. desember.
Ljúfir jólatónar munu umlykja rýmið og skemmtilegar, einfaldar og fallegar hugmyndir að kertum til að skreyta með heima fyrir, í aðventukransinn eða jólapakkann verða til sýnis. Það eina sem þú þarft að gera er að mæta og njóta; allt efni er á staðnum, og boðið verður uppá ilmandi jólaglögg. Þar að auki verður heitt á könnunni og hægt að ylja sér á ljúfu jurtatei.
Nóg verður af góða skapinu en það er eflaust gott að taka sitt með líka. Fullkomið tækifæri til að taka vini sína á langþráð deit, glæða jólaandann og kynnast nýju handverki og fólki.
Þriðjudaginn 3. desember Klukkan: 19:30-21:30 Verð: 6900kr
Thelma Lind er forfallinn fagurkeri og stemningskona sem leggur stund á allt dund. Hún er með sjónlistarpróf frá Myndlistarskóla Reykjavíkur en er að öðru leyti sjálflærður listamaður sem unir sér best bakvið pottana eða með pensil í hendi. Þú getur fylgt henni á instagram hér: https://www.instagram.com/thelmadund
-
Sækja eða senda
Sjá nánar um skilmálaHægt er að sækja allar vörur á vinnustofu Flóðs og fjöru á Rauðarárstíg 1 - einnig er hægt að óska eftir að fá vörur sendar með því að senda póst á netfangið: herasigurdar@gmail.com
-
Handgert og umhverfisvænt
Allar vörur Flóðs og fjöru eru handgerðar og flest allir þræðirnir úr endurunnu efni sem kemur frá Póllandi. Reynt er eftir fremsta megni að hafa alla aukahlutir eins og viðarstangir, hringi og kúlur einnig umhverfisvæna.